Færsluflokkur: Ferðalög

Whitehorse - Petropavlovsk - Osaka

Farið frá Whitehorse með trega. Start valve á hægri mótor var reyndar svo tregur að hann hreyfðist ekki og þurfti að handsnúa mótornum í gang. Kom þar Jakob sterkur inn með skiptilykilinn.

Flugið til Petropavlovsk-Kamchatskiy var óvenju rólegt hjá flugmönnunum, meira var að gera aftur í og flugvirkinn var að jafna sig eftir átökin við hreyfilstartið. Flogið var framhjá Mt. McKinley, hæsta fjalli Norður-Ameríku og síðan yfir Fairbanks í Alaska, áður en lagt var yfir Beringssund. Daglínan rann undir okkur og við það, töpuðum við einum sólarhring sem við komum reyndar til með að vinna upp þegar austar dregur. Á augnabliki fórum við úr því að vera 12 tímum á eftir Íslendingum í það að vera 12 tímum á undan. Farþegarnir skáluðu í kampavíni eftir að niðurtalning gaf til kynna nákvæmlega hvenær farið var yfir línuna.

Petropavlovsk er rússneskur bær ef bæ skyldi kalla í þeirri merkingu. 450 þúsund manns búa þar, en eins og með Whitehorse þá leit út fyrir að 20.000 manns byggju þar. Aðflugið lá yfir há fjöll (sjá myndir) og eru nokkur virk eldfjöll í næsta nágrenni enda má sjá rjúka úr eldfjallagígum. Eldsneytistakan tókst vel og áfram var haldið til Osaka.

Osaka flugvöllur er byggður á eyju sem er algjörlega manngerð (Löngusker?). Við komuna var tekið á móti okkur af starfsfólki Japan Aviation Service Co. Inc og fór fólkið sem stormsveipir um flugvélina. Okkur datt í hug orðið “mauraþúfa” þegar við fylgdumst með athöfnum þeirra í besta skilningi þess orðs. Þjónustustig Japana er gríðarlega hátt og var allt sem hugsast gat, skipulagt út í ystu æsar og þurfti áhöfnin ekki að hafa áhyggjur af neinu og var næstum því nóg um tilstandið. Okkur var tekið eins og þjóðhöfðingjum.

Næsta færsla lýsir reynslu okkar af Osaka, enda fáum við tveggja daga kærkomna hvíld hérna.


Toronto - Whitehorse, Yukon

Farþegar ganga um borðFarþegarnir komu vel stemmdir til leiks í Toronto og við tókum á móti þeim með bros á vör. Allir voru mjög spenntir að leggja í þennan merkilega leiðangur og brottför frá Toronto gekk að óskum. 

Fimm og hálf klukkustund leið fljótt og var farþegum boðið upp á

margréttaðan hádegisverð ásamt tertum og tilheyrandi. Óbyggðir Kanada runnu framhjá og lending í Whitehorse var samkvæmt áætlun.

Whitehorse er gamall gullgrafarabær og gegndi stóru hlutverki sem þjónustu- og flutningamiðstöð í kringum aldamótin 1900 þegar gullæðið reið yfir. Allt yfirbragð bæjarins ber það með sér og myndir í albúminu okkar sýna glöggt hve bærinn er gríðarlega sveitalegur. Þó hér búi 21 þúsund manns, lítur út fyrir 20.800 séu einhvers staðar annars staðar en hérna. 75% íbúa Yukon búa samt hér.

Þeir sem muna eftir "Northern Exposure" þáttunum sem sýndir voru í Sjónvarpinu fyrir nokkrum árum, geta ímyndað sér hvernig hér er umhorfs.

Kvöldverður með farþegunum var góð byrjun á frábærri ferð og fengum við að bragða á vísundasteik eftir að hafa kynnt okkur fyrir farþegunum okkar.

Lagt af stað áleiðis til Osaka að morgni 6. nóvember. 


Heimsferð 2007

Hér er dagskráin yfir Kringum Jörðina á 25 dögum.

Ferðin hefst í Keflavík 4. nóv áleiðis til Toronto, Kanada. Svo er planið svona:

5. nóv Toronto - Whitehorse, Yukon fylki í Kanada.

6. nóv Whitehorse - Petropavlosk-Kamchatka, Rússlandi (stoppað til að taka eldsneyti)

7. nóv Petropavlosk-Kamchatka - Osaka, Japan

10 nóv Osaka - Hong Kong

12 nóv Hong Kong - Saigon (Ho Chi Mihn), Vietnam

14 nóv Saigon - Siem-Reap, Kambódía

17 nóv Siem-Reap - Agra, Indlandi

19 nóv Agra - Dubai, Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum

22 nóv Dubai - Nairobi, Kenýa

25 nóv Nairobi - Luxor, Egyptaland

27 nóv Luxor - Cairo og þaðan strax til Prag, Tékklandi

30 nóv Prag - Keflavík.


« Fyrri síða

Um bloggið

Heimsfarar Icelandair

Áhöfnin

Áhöfn FI-1409
Áhöfn FI-1409
Áhöfn TF-FIA, Flugnúmer FI-1409, flýgur hringinn í kringum jörðina á 26 dögum.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Stelpurnar allar með fjaðragrímurnar á leiðinni frá Prag
  • Oddný skilaði farþegunum heim til Toronto í Víkingadressi
  • Íris og Birgitta í víetnömskum búningum
  • Carl uppboðshaldari
  • Góssið sem var á uppboði til styrktar ABC

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband